ORKUMEÐFERÐ MEÐ TÓNHEILUN
Orkumeðferð er heilun þar sem við, ég og þú, aðstoðum orkulíkamann, efnislíkamann, tilfinningalíkamann og undirmeðvitundina að losa um staðnaða orku og stíflur sem myndast vegna áfalla og streitu daglegs lífs. Orkumeðferð er blönduð tækni heilunar þar sem ég nota orkulækninga aðferðir, reiki heilun og access bars til að aðstoða þig við að heila sjálfan þig. Í meðferðinni eigum við einnig samtal sem er mikilvægt til að aðstoða þig við að losa um staðnaða orku sem og endurstillingu undirmeðvitundar þinnar.
Tónheilun hefur áhrif á bæði líkamlegt og andlegt ástand þitt með því að hreyfa við því sem er fljótandi í líkama þínum sem og hreyfa við orkulíkamanum þínum. Víbríngurinn sem kemur frá tónunum hefur áhrif á allt umhverfið og hver fruma titrar á sínum hraða sem verður til þess að hreyfing á sér stað og losar um hvort sem það eru líkamlegir verkir eða stöðnuð orka, tilfinningaleg eða tengd orkustöðvum þínum. Rannsóknir hafa sýnt fram á að tónheilun hjálpar til við að slaka á taugakerfinu, losar um stress og kvíða, bætir svefn, eykur innri frið, veitir jafnvægi, eykur skýrleika, stuðlar að tilfinningalegu jafnvægi, eykur sjálfsmildi og vellíðan.
90 mínútur í ró og slökun í þægilegu umhverfi.
Verð: Dagtími frá kl. 9-15.30, 20.000 kr tíminn
Eftirmiðdags- og helgartími frá 16.00-21.00, 25.000 kr tíminn
verð með hjartaopnandi cacao +1000 kr