top of page

KUNDALINI-REIKI NÁMSKEIÐ

Hvað er Kundalini-Reiki heilun?

Kundalini-Reiki er djúp orkuvinna þar sem opnað er á kundalini orkuna þína með mýkt reikisins. 

Hvað er kundalini orka?

Kundalini orka er fornt hugtak sem kemur úr indverskri andlegri hefð og er oft tengt jóga og hugleiðslu. Hún er talin vera lífsorka sem býr við botn hryggjarins, í rótarstöðinni eða "Muladhara" chakra. Þetta hugtak er mjög víðtækt og inniheldur djúpa andlega, líkamlega og orkubundna þætti. Talið er að við vakningu Kundalini "lífsorkunnar" færist hún upp líkt og snákur um allar hinar orkustöðvar og hjálpar til við að skapa jafnvægi í lífsorkunni þinni.

Eiginleikar Kundalini orkunnar

  1. Lífsorka: Kundalini er talin vera frumkraftur lífsorkunnar, eða Prana, sem tengist bæði líkamlegri og andlegri heilsu.

  2. Sköpunarorka: Hún er tengd sköpunarferlinu, bæði í bókstaflegri og táknrænni merkingu, og tengist sköpunargáfu, kynorku og andlegum þroska.

  3. Transcendent Orka: Þegar hún rís, getur hún veitt djúpa andlega upplifun, innsæi og aukna meðvitund.

 

Með því að opna á Kundalini orkuna þína geturðu upplifað eftirfarandi:

  • Aukna orku: Margir upplifa aukna líkamlega og andlega orku.

  • Meiri andlegan þroska og tengingu: Aukið innsæi, meðvitund og andleg upplifun.

  • Heilun: Getur hjálpað til við að losa um orkustíflur og stuðla að jafnvægi, bættri heilsu og vellíðan, betri svefni, meiri kyrrð og ró á huga og líkama.

 

Ef þú hefur upplifað KAP (Kundalini Activation Process) þá er Kundalini - Reiki ekki ósvipað en gert á mun mýkri hátt og ekki há tónlist.

Til að koma á kundalini - reiki námskeið hjá mér þarftu að hafa tekið Reiki 1 og 2 (má að sjálfsögðu vera hjá öðrum en mér).

Hvers vegna að fara á námskeið?

  • Á kundalini-reiki námskeiði lærirðu um orkustöðvar þínar og færð námsgögn sem aðstoða þig að skoða og vinna með þær. 

  • Farið verður nánar í kundalini orkuna og hvað hún gerir fyrir þig.

  • Þú færð öfluga vígslu inn í kundalini-reiki orkuna sem gerir þér kleift að nota orkuna sjálf/ur í þinni hugleiðslu og sjálfsheilun.

  • Þú færð heilun & niðurhal.

  • Þú lærir að nota kundalini-reiki orkuna fyrir þig í sjálfsheilun.

  • Þú lærir að nota kundalini-reiki orkuna þína fyrir þig í hugleiðslu.

Ef þú ert í sjálfsrækt, sjálfsheilun, vinnur sem heilari eða með fólki í umönnun eða samtölum eða öðru eða langar til þess að hreinsa betur staðnaða eða neikvæða orku vegna áfalla þinna eða einfaldlega langar til þess að líða ennþá betur, þá er þetta námskeið fyrir þig!

Á námskeiðinu lærirðu að vinna með kundalini og reiki orkuna fyrir sjálfsheilun og hugleiðslu. Þú lærir auk þess um reiki og kundalini orkuna ásamt orkustöðvunum, karl- og kvenorku.  Færð vígslu og heilun, hugleiðslur, möntrusöng, sjálfsheilun, tónheilun, cacao seremóníur, ásamt léttum hádegisverði og námsgögnum.

Námskeiðið er einnig undirbúningur fyrir Kundalini-Reikimeistarann sem verður hægt að koma í, í mars 2025.

​Námskeiðið er 2 dagar, 12 klst. Aðeins 4-5 á hverju námskeiði

Námskeið 17. og 18. ágúst frá kl. 10-16 (fullt).

Námskeið 16. og 17. nóvember frá kl. 10-16 (fullt).

Námskeið 30. nóv og 1. des (fullt).

Námskeið 1. og 2. feb (3 laus pláss).

Hafðu samband ef þú vilt fara á biðlista ef losnar eða fá að vita þegar næsta námskeið verður.

Verð: 70.000 kr

Til að staðfesta skráningu og taka frá pláss þarf að greiða 30.000 kr* inn á námskeiðið.

Þú færð tölvupóst um leið og þú hefur skráð þig hér neðar.

*staðfestingargjald er ekki endurgreitt

Ég mun vera með Kundalini-Reiki 3 tíma session með cacao, spjalli, kundalini-reiki heilun og integration á eftir fyrir þá sem hafa tekið Kundalini-Reiki námskeið, fyrir 2-6.

17. jan kl. 19-22 og 15. feb kl. 14-17, til að styrkja og efla og spjalla.

Verð: 15.000 kr, 25.000 fyrir báða tímana.

Kundalini-Reikimeistara námskeið 

Námskeiðið er 2 dagar, 12 klst + undirbúningur fyrir námskeið . Aðeins 4 á námskeiði (námskeið haldið 1-2 á ári).

Námskeið hefst með námsefni sem þarf að fara í gengum áður en komið er á námskeiðið og svörun á spurningum, námsefni inniheldur orku kerfi í líkamanum sem mikilvægt er að hafa skilning á, áður en vígsla og æfingar hefjast.

 

Jógakennaranám er góður kostur og undirbúningur fyrir Kundalini-Reiki meistaranám. Mikilvægt er að hafa góða reynslu af því að heila aðra áður en þetta námskeið er tekið og bið ég þig að senda mér upplýsingar um þig á lifdubeturmedther@gmail.com um reynslu af Reiki, kundalini orkuvinnu sem þú hefur upplifað, vinnu með fólki og öðru sem þér finnst viðeigandi fyrir umsókn um þátttöku á þessu námskeiði.

 

Sem Kundalini-Reikimeistari geturðu hjálpað öðrum og heilað með kundalini-reiki orkunni.

Á námskeiðinu lærirðu að vígja aðra inn í Kundalini-Reiki orkuna og getur haldið Kundalini-Reikinámskeið fyrir Kundalini-Reiki 1 og 2 (ath. að til að geta vígt inn í Kundalini-Reikimeistaraorku þarftu að vera Dharana meistari).

Þú lærir að opna fyrir Kundalini-Reikiorkuna hjá öðrum.

Námskeið 15. og 16. mars 2025 (4 laus pláss).

Verð: 100.000 kr

Til að staðfesta skráningu og taka frá pláss þarf að greiða 35.000 kr* inn á námskeiðið.

Þú færð tölvupóst um leið og þú hefur skráð þig hér neðar.

*staðfestingargjald er ekki endurgreitt

Skráðu þig á námskeið!

Takk fyrir að velja þig!
bakgrunnur.png

UMSAGNIR NEMENDA

"Það var dásamlegt að mæta á námskeið til Kolbrúnar. Kolbrún er með góða nærveru og útskýrir hlutina á svo góðan og mjúkan hátt, það er stutt í hláturinn og gleðina og hún tekur hlutunum ekki of alvarlega og þannig hjálpar hún manni að slaka svo vel inn í sjálfan sig. Þetta var virkilega fyrir nærandi, lærandi og gefandi stund." - Lovísa Kristín Einarsdóttir

 

"Tók Reikinámskeið og Reikimeistara námskeið hjá Kolbrúnu og það er held ég það besta sem ég hef gert fyrir mig. Elska þessa orku og Kolbrún nær einhvern veginn að gera alla umgjörð og allt umhverfi sitt svo notalegt. Hún er á sama tíma svo fallega jarðbundin og svo líka magnað göldrótt Ég ákvað strax að koma á Kundalini Reiki námskeið þegar ég sá það auglýst. Ég vissi bara að það myndi efla það sem ég var búin að læra og það gerði það svo sannarlega. Námskeiðið svaraði öllum þeim spurningum sem ég var með og meira til. Ég upplifði einhvern veginn meiri dýpt inn í hvernig ég upplifi og túlka orkuna og kenndi mér að hugsa betur um sjálfa mig svo að ég geti betur heilað aðra. Mæli með fyrir alla sem eru að vinna með Reikiorkuna reglulega og eru að vinna með sjálfan sig." - Petrína Hjálmarsdóttir

 

"Reikinámskeið 1&2 hjá Kolbrúnu er eitt það besta sem ég hef gert fyrir sjálfa mig. Að hittast í litlum hópi þar sem allir hafa sameiginlegan áhuga á viðfangsefninu og geta deilt upplifun og reynslu. Ég finn það að stunda reiki kemur ró á taugakerfið, sama hvort ég er að gefa eða þiggja, eykur núvitund og sjálfsvitund. Staðsetning námskeiðsins gæti eiginlega ekki verið betri, algjör ró og fallegt umhverfi. En rótin af allri þessari upplifun er Kolbrún. Hún hefur svo fallega og góða nærveru. Hún er algjör demantur ✨ Takk fyrir mig 💖" - Lísbet Alexandersdóttir

"Ég er svo glöð og ánægð með að hafa komið til þín í Reiki Kolbrún Ýr. Eiginlega komstu til mín. Þegar ég var að leita á vefnum um reiki þá bara kom engin annar reiki meistari til greina fyrir mig. Notaleg nærvera þín, einlægni og fagmennska heillar mig. Hvað Reiki gerði og gerir fyrir mig? Tvímælalaust dýpkað vitund mína og gefið mér ró í hugann. Einnig hjálpað mér að takast á við vefjagiktina mína minnkað einkenni og nær verkjalaus. Takk takk og aftur takk."

"Reiki I & II með Kolbrúnu var fullkomin byrjun á árinu. Ótrúlega endurnærandi 2 sunnudagar, með frábærum hóp & frábærum kennara. Andrúmsloftið sem Kolbrún skapar er svo einlægt, opið og afslappað. Reikið er búið að styrkja samband mitt við sjálfa mig, opna fyrir mér nýjar leiðir í sjálfsrækt og minna mig á töfrana í kringum okkur. Takk fyrir mig 💖" - Inga Margrét Jónsdóttir

"Kolbrún nálgast efnið af mikilli auðmýkt og afslöppun. Hún hefur einstaka nærveru og lætur alla njóta sín. Frábærir dagar fullir af fallegri orku og kærleika." - Sædís Íva Elíasdóttir

"Dásamlegt námskeið með frábærum kennara, langt umfram mínar væntingar! Mér finnst ég örugg til að veita öðrum Reiki eftir að hafa verið hjá Kolbrúnu á Reiki I og II." - Unnur

 

"Flott reikinámskeið, vel upp sett námskeið sem kom einnig með tónheilun sem kom skemmtilega á óvart. Nærandi og gott námskeið, mæli með fyrir alla. Leiðbeinandinn, Kolbrún Ýr skilaði efni og rými óaðfinnanlega. Takk fyrir mig🙏"

 

"Ég var kannski tortryggin um að ég ætti erindi á Reiki námskeið en Kolbrún opnaði þetta fyrir mér með sínu einstaka lagi og nú skil ég ekkert í fyrri efasemdum. Frábær kennari." - Haraldur Flosi

"Umhverfið var svo slakandi og róandi og gaf mér góða tengingu við náttúruna. Andrúmsloftið var yfirvegað, sem endurspeglaðist af hversu einstaklega róleg, yfirveguð og hlý Kolbrún er. Henni var greinilega umhugað um að við fengjum sem mest út úr námskeiðinu. Hún gefur svo mikið af sér til okkar nemenda sinna eins og til dæmis kærleika og velvild. Við höfum öll gott af því að hugsa inn á við og vera í núinu og fá verkfæri til að hjálpa okkur og öðrum. Reiki heilun er frábært verkfæri til sjálfshjálpar og til að hjálpa öðrum að finna kærleika og innri ró í okkar háhraða samfélagi. Ég er afar þakklát fyrir að hafa átt góða samveru í áhugasömum hóp sem náði góðri tengingu og gaf mikið af sér. Þúsund þakkir fyrir frábært námskeið. Ég er jafnframt afar þakklát og ánægð fyrir að hafa komið á þetta námskeið til Kolbrúnar og fá að hafa hana sem Reikimeistara, eru forréttindi. Hlakka til framhaldsins." Með kærleikskveðju, Svava Margrét

"Þetta er yndislegt námskeið og Kolbrún geggjuð hjálpaði mér að setjast betur í mig" - Viktor Snær Jónsson

"Kolbrún er yndisleg með góða nærveru og býr til svo fallegt rými sem fær mann til að líða svo vel ❤️ Reiki hjálpar að skilja dýpra og meira og fá betri tengsl við sjálfan sig. Getur hjálpað öðrum en ekki síst sjálfum sér að líða betur og vera í betra jafnvægi í lífinu. Ég er þakklát fyrir að hafa gefið mér tíma til að læra Reiki og sé fram á að nýta það mikið í framhaldinu bæði fyrir sjálfa mig og fjölskylduna til að byrja með en svo verður spennandi að sjá hvað verður í framtíðinni." - Erla Ólafsdóttir

 

"Ég held að allir hefðu gott og gaman af því að gefa því gaum að það að sinna öðrum er einnig mikilvæg sjálfshjálp. Reiki er að miklu leyti augljóslega spurnig um nánd og athygli á líðan annars fólk sem skilar sér bæði í vellíðan þeirra sem reikið fá og þeirra sem gefa. Köllum það Reiki en fyrir mér er Reiki samkennd og hlýja. Heimurinn þarf meira af slíku. Kolbrún Ýr er góður kennari sem útskýrði námsefnið vel og vandlega. Kolbrún er þolinmóð, hlý og skemmtileg og gætir þess að sinna þörfum nemanda vel. Ég get hiklaust mælt með Reikinámskeiðum hennar." - Steinunn Ólína

"Þegar ég fór á Reiki námskeið hjá Kolbrúnu þá fór ég með engar væntingar það sem mætti mér var ein sú fallegasta sál sem ég hef hitt kærleikurinn sem streymdi frá Kolbrúnu er eitthvað annað en hægt er að ímynda sér ég gat ekki fengið betri Reiki kennara en hana svo er hún svo skemmtileg í alla staði kærar þakkir fyrir mig." - Helga Helgadóttir

"Reiki 1 og 2 námskeiðin hjá Kolbrúnu voru mjög vel uppsett og fróðleg og maður labbaði endurnærður og á sama tíma þreyttur út af því. Kolbrún er með dásamlega nærveru og gerir námskeiðið einfalt og skemmtilegt. Ég vissi ekkert um Reiki fyrir námskeiðið en maður lærir allt hjá henni." - Þórdís

"Ein besta gjöf sem ég hef fengið og gefið sjálfri mér tíma fyrir, er að fara á reiki heilunar námsekið hjá yndislegu Kolbrúnu, læra og deila, gefa og þiggja, falleg og góð nærvera Kolbrúnar og allt svo fallegt hvernig hún setur námskeiðið upp". - Edda Rún Ragnarsdóttir

"Kolbrún Ýr er dásamleg manneskja ❤️ Hún hefur einstaka nærveru ❤️ svo mannleg og og góð í samskiptum. Hún gefur mikið af sér og ég lærði hjá henni að hafa trú á sjálfri mér 💖 Hún er mín fyrirmynd ❤️" - Helga Georgsdóttir

"Vissi ekki hvað á átti von á þegar ég skráði mig á þetta námskeið en varð svo aldeilis hissa. Hafði oft farið í Reiki hjá öðrum en aldrei haldið að ég gæti lært líka en vá hvað það var geggjað að komast að því að ég get svo sannarlega heilað aðra og sjálfan mig. Hefði ekki viljað missa af þessu tækifæri. Takk fyrir mig ❤️" - Ólöf Sif Þráinsdóttir

"Þetta var mögnuð upplifun fyrir mig. Ég er þakklát sjálfri mér fyrir að hafa gefið mér þessa gjöf að fara á námskeiðin. Þetta er öflugt verkfæri að vinna með, bæði til að heila sig sjálfa sem og heila aðra sem þiggja það." - Tinna Björk

"Mjög gott námskeið, sérstaklega góð nærvera Kolbrúnar gerði námskeiðið enn betra :)" - Anna Garðarsdóttir

"Allir ættu að upplifa þessa ró á þessum tímum. Frábært og mikil upplifun og Kolbrún með sína ró í kringum sig gefur manni mikið. Fær öll mín meðmæli." - Anna Garðarsdóttir

"Flott reikinámskeið, vel upp sett námskeið sem kom einnig með tónheilun sem kom skemmtilega á óvart. Nærandi og gott námskeið, mæli með fyrir alla. Leiðbeinandinn, Kolbrún Ýr skilaði efni og rými óaðfinnanlega. Takk fyrir mig🙏"

 

"Mér finnst að það eigi að byrja að kenna Reiki í leikskóla. Börn eru mjög næm og eru fljót að læra. Þetta er mjög gott verkfæri til að læra inná á sjálfan sig sem og vinna með sjálfan sig í kröfuhörðu umhverfi. Þetta var mögnuð upplifun fyrir mig. Ég er þakklát sjálfri mér fyrir að hafa gefið mér þessa gjöf að fara á námskeiðin. Þetta er öflugt verkfæri að vinna með, bæði til að heila sig sjálfa sem og heila aðra sem þyggja það." - Tinna Björk

"Þetta er fullkomin slökunarmeðferð við öll tækifæri. Sem heilbriðgisstarfsmaður með mikil meðferðartengsl við skjólstæðinga legg ég vonir við að geta boðið upp á Reiki sem slökunaræfing eða / meðferð einkum fyrir þá sem þjást af kvíða og fá sjalfan að vera í snertingu við annað fólk."

 

"Kolbrún er alveg dásamlegur kennari og ég gæti ekki mælt meira með reiki heilunar námskeiði með henni. Fagleg og falleg nálgun á efnið og yndisleg orka. Mér finnst ég alltaf geta leitað til hennar með spurningar og vangaveltur og hún er alltaf til staðar. Umhverfið dásamlegt og ómetanlegt að fá að æfa sig í persónulegu og fallegu rými með góðum hóp samnemanda. Hóparnir eru ekki stórir og námskeiðið verður persónulegt og maður kemur út endurnærður. Ef ekki betri útgáfa af sjálfum sér." - Lúcía Sigrún Ólafsdóttir

"Að læra Reiki I og II hjá Kolbrúnu hefur gert líf mitt betra andlega og likamlega. Ég finn fyrir meiri ró og kærleika, hugrekki og styrk í öllu því sem ég tek mér fyrir hendur. - Daníel Þorsteinsson

 

"Mæli með þessu námskeiði fyrir alla sem vilja opna á heilunarorkuna. notaleg stemmning og nærvera Kollu hlýleg og yndisleg. námskeiðið í heild sinni nærandi og fræðandi. Takk ❤️" - Brynja Emilsdóttir

"Fór í Reiki kynningartíma án nokurra væntinga fyrir nokkrum mánuðum. Sá tími var svo öflugur og losandi að ég stökk til þegar ég heyrði af námskeiðinu. Það kemur mér svo á óvart hvað svona einföld tækni nær að kalla fram öflugri slökun og hvíld. Ég er smám saman að ná að slaka niður flesta á heimilinu." - Nikkó

"Ég er nýbúin að klára Reiki heilun hjá Kolbrúnu. Kolbrún er með yndislega nærveru, frábær leiðbeinandi og það mikill kærleikur og ljós í kringum hana. Hún kann að skapa fallegt og notarlegt rými sem manni líður vel í. Eftir námskeiðin þá fann ég fyrir öryggi til að byrja strax því við fórum svo vel í efnið með góðum útskýringum frá henni og þjálfun." - Lovísa Kristín Einarsdóttir

"Ég trúi því að allt hafi sinn tíma og leiðin að settu marki sé að einhverju leiti vörðuð þótt á stundum ég viti ekki endilega hvert ég stefni. Þegar ég ákvað að leita mér að Reiki námskeiði fór ég á netið og fékk upplýsingar um nokkur námskeið hjá nokkrum einstaklingum. Þar sem á ekki alltaf auðvelt með að velja ákvað ég að legga val mitt í hendur mér æðri máttar sem leiddi mig á námskeið hjá Kolbrúnu Ýr Gunnarsdóttur. Fyrir mig var þetta svolítið eins og að koma heim, ég fann mig strax bæði í návist hennar og umhverfisins sem hafði verið skapað utan um námskeiðin. Námskeiðin voru fámenn sem mér fannst gott því það gaf tækifæri til að halda betur utan um allt sem fram fer á slíku námskeiði. Mér fannst líka gott að Reiki I og Reiki II voru ekki tekin sömu helgi. Það gaf kost á að meðtaka betur hvað reiki er, hvernig það er notað og að læra að tileinka sér notkun þess." - Íris Björg Guðbjartsdóttir

 

"Að taka Reikimeistarann fannst mér nauðsynlegt eftir að vera búinn með Reiki I og II. Þetta var enn dýpra og gerði mjög mikið fyrir mig.

Þegar búið var að vígja mig inn þá fann ég fyrir breytingu inn í mér, allt i einu steig ég inn i eitthvað element og ég fann ekki lengur fyrir þessum ofsakvíða og hræðslu við að tala formlega fyrir framan annað fólk. Sem er búið að vera rosalegt vandamál alla mína lífstíð í allri minni skólagöngu og í fjölskylduboðum og litlum hópum. Ég veit að margir segja „já ég er lika rosa stressaður/stressuð að tala fyrir fram aðra“, en hjá mér var þetta á öðrum level, það var að líða yfir mig og þannig, þetta var orðið mjög djúpt og erfitt vandamál að glíma við. En nú er það bara farið. Sem er magnað. Eftir námskeiðið var ég svo eftir mig og viðkvæmur í nokkra daga, eins og líkaminn hafi verið að losa sig við eitthvað. En eftir það er ég endurnærður, sjálfstraustið er miklu meira. Þetta var mjög stórt stökk fyrir mig og mitt líf, stærra en mér nokkru sinni hefði getað dreymt um." - Daníel Þorsteinsson

"Reiki hefur verið mikil gjöf í mínu lífi og ég nota það daglega bæði á sjálfan mig, í hugleiðslu og á aðra. Að læra reikimeistaran hjúpaði þekkinguna sem ég hafði á reiki meiri dýpt, þakklæti og virðingu fyrir þessari mögnuðu heilunartækni sem reikið er og ég finn fyrir meiri ró og fókus. Ég get sko einlæglega mælt með reikimeistaranámskeiði hjá Kolbrúnu. Hún er einstaklega góður kennari og miðlar þekkingu sinni af mikilli næmni, hlýju og djúpum áhuga á efninu. Takk elsku besta Kolbrún fyrir þína töfra." - Þórunn Birna Þorvaldsdóttir

bottom of page