top of page

Acerca de

LÆRÐU AÐ TENGJAST LÍFSORKUNNI MEÐ MÝKT & MILDI 6 VIKNA NÁMSKEIÐ Í EDEN YOGA FIMMTUDAGA KL.

Lærðu að tengjast lífsorkunni með mýkt og mildi - 6 vikna námskeið með Kolbrúnu

Lærðu að tengjast líkama þínum og huga betur með æfingum sem hjálpa þér að heila sjálft þig. Á námskeiðinu gerum við æfingar sem hækka orkutíðnina þína, veita henni jafnvægi og róa um leið taugakerfið þitt. Æfingarnar hjálpa þér að losa þig við neikvæða og/eða staðnaða orku í efnis-, tilfinninga- og orkulíkama með einföldum æfingum og sjálfsheilun. Flestir tímar munu einnig innihalda tónheilun til að hreyfa við orkunni þinni. Við eflum orkuflæðið með ýmsum orkuæfingum, orkulækningum, heilun handa, kundalini yoga, qi gong, tapping og fleiri áhrifaríkum æfingum til að hreyfa við orkustöðvunum.

Á námskeiðinu verður einnig lögð áhersla á tengingu við líkama með hugleiðslu, yoga nidra og yin yoga sem aðstoðar þig við líkamsvitund og núvitund. Streita og áföll leiða til þess að hugur og líkami aftengjast og með æfingunum sem við munum leggja áherslu á þann mikilvæga þátt að tengja huga og líkama með yoga nidra, líkams- og núvitund. Þú lærir að efla lífsorkuna (prana) innra með þér með einföldum öndunaræfingum um leið og þú með yoga nidra og hugleiðslu lærir að kyrra huga, líkama og sál og ná innri kyrrð og ró.

Eden er með yndisleg hengirúm sem hægt er að leggjast í á meðan hugleiðsla / yoga nidra er.

Komdu í öfluga sjálfsheilun með Kolbrúnu ❤ Verð: 24.900

(ath að hægt er að skipta greiðslu og klára 1. nóv ef þess er óskað, sendu email á info@edenyoga.is)

 

Kennari er Kolbrún Ýr Gunnarsdóttir heilari, jógakennari og tónheilari. Kolbrún er með dipl. ma-ster í jákvæðri sálfræði, er hatha, yin, nidra og áfalla- og streitu jógakennari. Hugleiðslu-, öndunar og núvitundarkennari. Hún er Access Bars orkumeðferðaraðili, Reikimeistari, Kundalini - reikimeistari, hefur lært Curandero hjartaheilun og lært ýmsar aðferðir í orkulækningum.

Skráning á edenyoga.is

  • Facebook
  • Instagram
bottom of page